E-mail frá Munda

Mundi sendi mér ásamt fleira fólki keðjubréf, já ég hata keðjubréf!
Þannig að til að vera ekki algjör róni - dóni whatever! Þá ákvað ég að svara bara þessum spurningum hér og ég hvet ykkur til að gera það sama á ykkar síðu!

Og þar sem Inga er svo frábær manneskja mana ég hana alveg sérstaklega til að svara þessu á síðunni sinn, sem er http://www.viggah.bloggar.is :) hehe

 

1. Hvað er klukkan? Þetta er nottla mikilvægasta spurningin ;) korter í átta

2. Fullt nafn? Sandra Norðfjörð Sigurðardóttir

3. Hvað ertu hræddust við? Ég er hræædust við að eitthvað hendi litla strákinn minn. En fóbían mín er fiðrildi og hrossaflugur. Ég er að segja ykkur það, ég mundi hlaupa í gin ljónsins til að flýja hóp af þessum skordýrum.

4. Hvaða mynd sástu síðast í bíó? Það er um það bil ár síðan og ég bara hreint út sagt man það ekki.

5. Hefurðu séð draug? Já, en þar sem ég trúi ekki á drauga þá megið þið alveg senda mér númerið á Klepp og ég panta innlögn í hvelli!

6. Hvar fæddistu?  Á Landsspítalanum

7. Uppáhalds matur? Ofnbökuð bleikja með hrísgrjónum á botninum og þunnt ostlag ofan á - namm það besta sem ég hef smakkað

8. Komið til Alaska ? Já auðvitað! Hmm eða bara NEI

9. Ever been toilet paper rolling ? WTF?? Why?

10. Hefurðu einhvern tímann elskað einhvern svo mikið að þú hefur grátið? Já!

11. Hefurðu lent í bílslysi? Nei ekkert til a tala um

12. Kringlur eða beikon bitar? Mmm beikon bitar

13. Favorite day of the week ? Það er voða breytilegt

14. Uppáhalds veitingastaður? Besti matur sem ég hef nokkurn tímann fengið var framreiddur í Skagafirði ;)

15. Uppáhalds blóm? Brenninetla... neeehhh ég bara veit ekki

16. Uppáhalds íþrótt til að horfa á? SKATE RULES, ég kann ekkert að skeita, en strákar af hverju hættið þið allir að skeita fyrir 15 ára aldurinn? Það er ekkert flottara en gaur sem kann að skeita! (Telma skamm fyrir að koma mér á bragðið með þetta)

17. Uppáhaldsdrykkur? Kókómjólk og Aquarius, ég get ekki gert upp á milli

18. Uppáhaldsís? Ég á engan sérstakan uppáhalds ís, en til að halda vináttuna segi ég bara allur ís sem Írena, Elín eða Silja búa til :)

19. Disney or Warner Brothers? Váhh ég þekki ekki einu sinni muninn... er Disney ekki meira svona krakka?

20. Uppáhalds skyndibiti? Ekki fá sjokk, en Aktu Taktu

21. Hvaða litur er á svefnherbergisteppinu þínu? Bara ljósbrúnt og ljótt teppi sem fylgdi með íbúðinni

22. Hversu oft féllstu á ökuprófinu? Tvisvar á bóklega... ég fattaði allt í einu í þriðja skiptið að maður þurfti actually að lesa bókina alveg í gegn þrátt fyrir gróusögur sem segja annað. Ég náði verklega strax, en kunni samt ekkert að keyra, ég skil ekki alveg af hverju ég náði!

24. Hvað gerirðu yfirleitt þegar þér leiðist?
Það fer voða mikið eftir ástandinu í kringum mig, en það er t.d. fara út og kíkja í sígó á einhvern í nágrenninu, kveikja á imbanum, hringja í einhvern eða bara toga í hárið á Jóa eða eitthvað

25. Svefntími? Það fer eftir hvort ég er Sigurður er í fríi eða er hjá dagmömmu morguninn eftir, það er alveg frá 23:00 - 01:00 - vá hvað ég er gömul eitthvað! En það kemur alveg fyrir að ég vaki lengur ef það er eitthvað...

26. Hver á eftir að svara þessum spurningum fyrst? Líklega Inga þar sem ég "manaði" hana í það, hehehehhe :>

28. Svör hvers eru forvitnust/forvitnastur um? Bara allra , ég er forvitnin uppmáluð

29 Uppáhalds-sjónvarpsþáttur? Desperate Housewifes, nr2 er Cheers

30. Lexus eða BMW? BMW

31. Hvað ertu að hlusta á akkúrat núna? Sigurð að babbla

32. Hvað er uppáhaldsliturinn þinn? Hvítur og fjólublár (ekki fjólublá föt samt)

33. Hversu mörg tattoo ertu með? Ég er 100% natural... nei nú er ég að plata, ég er með lokk í naflanum. En mér finnst ljótt þegar stelpur eru með tattoo... þannig að nú vitið þið það stelpur, ef ég er búin að hrósa tattoo-unum ykkar þá var ég að ljúga. Seisei

34. Hvað mörg gæludýr áttu? Einn kettling sem gengur undir mörgum nöfnum; Bútur, Ljóni, Guðjón, Einar o.m.fl...

36. Hvað viltu hafa afrekað áður en þú deyrð? Að koma barninu (kannski börnunum) mínu  vel frá mér og tilbúin að takast á við lífið!

38. Hvað er uppáhalds hátíðin þín? Ætli það séu ekki jólin ;) Þau eru svo falleg

 

Ég sleppti nokkrum spurningum úr, sem pössuðu ekki alveg af því ég setti þetta á síðuna í staðinn fyrir að senda þetta með e-maili. En enjoy - ef þið nennið að lesa, þetta er svo laaaangt

 Þangað til næst! 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: viggah

Hmmm Sandra norðfjörð sigurðardóttir eg er búin svo in ur lil ass bitch lof jú

viggah, 21.4.2006 kl. 13:06

2 Smámynd: Sandra Norðfjörð

;) góð

Sandra Norðfjörð, 21.4.2006 kl. 22:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Strik í reikninginn! :)

Höfundur

Sandra Norðfjörð
Sandra Norðfjörð
Tvítug hress telpa!

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • baldur 016
  • Picture0114
  • l af8ca31277689f0d50350d55a0b80fd1
  • Fyllerí
  • himmi i bilnum

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (13.5.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband